ég hef ekki gert neitt uppbyggilegt undanfarið nema læra og prjóna.
þrátt fyrir erfiðleika með lokaverkefnið mitt tókst mér að klára það á réttum tíma og skila því á sinn stað. vonandi fæ ég sómasamlega einkunn fyrir, enda búin að hafa alveg nógar áhyggjur af þessu verkefni. í lokin fannst mér ég hafa skilað góðri vinnu, en það er spurning hvað kennurunum finnst.
áðan kláraði ég að prjóna síðan kjól úr lopa, hann er rosalega flottur en helst til stór á mig... sem er ekki alveg nógu gott. ég ætla að sjá til með hann, kannski virkar hann betur á mig þegar ég verð búin að þvo hann.
20. apríl 2009 klukkan 18:52
Þórunn Soffía Þórðardóttir Engin athugasemd
já það er komið páskafrí og ég er búin með skólann, fyrir utan skil á einu verkefni og tvö próf.
ég er búin að fá vinnu í sumar á Hrafnistu í rvk :) og er bara rosa ánægð með það!
mér finnst voða gott að vera í páskafríi... en ég er ein heima sem er pínu einmanalegt. hinsvegar er mikið um að vera hjá mér, ég er að vinna í lokaverkefninu mínu, horfa á bíómyndir, prjóna og svo fer ég út og hitti fólk. í kvöld var mér boðið í mat hjá ellisif frænku og það var mjög gaman.
í gær hefði mamma orðið 60 ef hún hefði lifað. ég keypti bleikar liljur og fór með niður að leiðinu hennar. ég ákvað að fá mér að borða í hádeginu í gær, ég fór í perluna, ein, og borðaði þar súpu og salat. mér líst vel á að búa til þannig hefð, á hverju ári þann 9. apr. fer ég og fæ mér eitthvað gott að borða í hádeginu.
jæja klukkan er orðin margt og ég ætlaði að vakna snemma í fyrramálið.
11. apríl 2009 klukkan 01:12
Þórunn Soffía Þórðardóttir 1 athugasemd
eins og maður er mikið fyrir framan tölvuskjáinn þessa dagana þá ætti maður að geta bloggað!
annars er ekki mikið að frétta af mér frekar en fyrri daginn, ég er að berjast við að skrifa lokaverkefnið mitt og ég er þónokkuð ánægð með það sem komið er, þó það sé kannski ekki mikið. ef ég bara heyrði frá leiðbeinandanum mínum.....
svo er ég að leita mér að vinnu hérna fyrir sunnan í sumar, bara einhverri vinnu! ef ég fæ ekki neitt þá er það bara nings af og til og svo ba ritgerðin mín sem verður skrifuð í sumar. ég ætla ekkert að vera að stressa mig á að fá enga vinnu því þá vinn ég bara að ritgerðinni minni... og útskrifast loksins! ég nenni ekki að hafa áhyggjur af hlutum sem ég ræð ekkert við.. það er atvinnuleysi og svona er þetta bara.
jæja það er nú svona.... ég held ég fari fram og finni mér eitthvað gott að narta í og svo aftur að skrifa lokaverkefnið. mikið um að vera!
ps kisa segi HÆÆÆÆÆ!
02. apríl 2009 klukkan 14:32
Þórunn Soffía Þórðardóttir Engin athugasemd
Ég tók mér smá pásu frá blogginu mínu, er búin að vera að blogga aðeins á ensku á myspaceinu mínu..... jahá.
En það er annars allt gott að frétta af mér. Bara skóli og svona. Ritgerðir og próf. Á morgun er ég að fara að hitta Guðný og við ætlum að LÆRA, bæði núna á föstudag og laugardag... ég stefni á að demba mér í ritgerð. Gaman gaman. Enda þarf ég að skila af mér núna á næstunni einni stórri ritgerð og svo er risa próf eftir tvær vikur. Svo megum við ekki gleyma Safnafr. verkefninu sem kemur þar á eftir. Mikið gaman mikið stuð.
Ég var að koma af Nings núna og lykta illa... vantar sturtu... síðan þarf ég að setja á rúmið mitt...
Jibbí!
05. mars 2009 klukkan 21:54
Þórunn Soffía Þórðardóttir Engin athugasemd
1. Þó það líti út eins og þú hafir drepið skrímslið, skaltu EKKI fara og athuga það heldur bara forða þér.
2. Ef þú kemst að því að húsið sem þú keyptir þér er byggt á eða nálægt kirkjugarði, var eitt sinn kirkja til að stunda svartagaldur, fyrrum eigendur þess urðu skyndilega brjálaðir, frömdu sjálfsmorð eða létust á hræðilegan hátt skaltu ekki setjast þar að heldur FLYTJA.
3. Aldrei og þá meina ég aldrei fara og leita af einhverju í kjallaranum þegar að það er rafmagnslaust. Þú ert að bjóða upp á verða drepinn.
4. Ef börnin þín tala við þig á Latnesku sem þau augljóslega kunna ekki, eða tala við þig með röddu sem er klárlega ekki þeirra eigin skaltu SKJÓTA ÞAU STRAX. Taktu eftir að þau deyja væntanlega ekki auðveldlega þannig að fleiri en eitt skot er æskilegt.
5. Hér er þumalputtaregla: Ekki leysa gátur sem opna hlið til Helvítis, það gerir engum gott.
6. Ef þú gengur á hljóð sem þú heyrðir, og kemst að því að það var kötturinn sem olli hljóðinu skaltu forða þér STRAX. Annars kemstu að því nokkrum sekúndum síðar að kötturinn kom ekkert nálægt hljóðinu.
7. Ef þú ert að hlaupa í burtu frá skrímsli máttu búast við því að detta að minnsta kosti 2 sinnum, ef þú ert stelpa þá er það mjöööööög líklegt.
8. Ef að fólk í þinni návist byrjar að hegða sér furðulega svo sem að augun þeirra verða græn, þau byrja að hvæsa, þeim langar í blóð, eða aukinn hárvöxtur birtist skaltu ekki reyna að hjúkra þeim heldur FORÐA ÞÉR eins fljótt og auðið er.
9. Ef bíllinn þinn verður bensínlaus á afskekktum vegi um miðja nótt skaltu ekki fara og biðja um hjálp í drungalega, ljóslausa húsinu sem virðist vera yfirgefið. Þá held ég að þig langi bara til að drepinn.
10. Gættu þín á aðilum sem eru með grímur og halda á keðjusög, stórum sveðjum, risahnífum, eldvörpum, heftibyssum, slátturvélum, band sögum, öxum eða hnífum í stað fingra. Þetta er ekki fólk sem vill skutla þér heim heldur MYRÐA ÞIG.
11. Ef þú finnur gamlan bæ sem virðist að enginn hafi búið þar í nokkra áratugi áttu ekki að setjast þar að, heldur forða þér. Ekki einu sinni vera þar yfir nótt.
12. Ef þú ætlar að leita skjóls í kirkju sem virðist vera yfirgefin og tekur um leið eftir því að krossinn á kirkjunni snýr öfugt skaltu drífa þig í burtu og leita skjóls annarsstaðar.
13. Ef þú ert bitinn af uppvakningi og nærð að forða þér þá skiptir ekki máli hversu mikið af sýklalyfjum þú færð hjá heimilslækninum, þú átt eftir að breytast Í UPPVAKNING, sættu þig við það !!
14. Ef þú heyrir klór, þungan andadrátt eða einhversskonar ískur bak við luktar dyr skaltu ekki opna hurðina til að athuga hvað þetta er. Ef þú gerir það máttu búast við því að nota Öxi sem höfuðfat.
15. Ef þú heyrir hljóð í húsinu þínu, stór gluggi eða jafnvel bakdyrnar eru opnar þegar þú kemur heim þá er það ekki besta ráð í heimi að fara í sturtu eða bað. Ég meina common, hversu mikið viltu láta drepa þig ?
16. janúar 2009 klukkan 17:52
Þórunn Soffía Þórðardóttir Engin athugasemd
Ég er búin að vera heima í viku núna. Það var æði fyrir norðan yfir jólin og áramótin :)
Skólinn byrjar núna á mánudag. Það er búið að vera smá vesen með stundatöfluna mína, allir þeir tímar sem ég get/þarf/vil taka eru kenndir á nákvæmlega sama tíma!!! meira ruglið... en það finnst út úr því hehehe.
Friðþór kom í gær :) hann er að fara að vinna uppá Hellisheiði. Pabbi fór líka í gær... hann er í Alaska útaf vinnunni. Í gær fór ég líka með Nóru til dýralæknis, hún fór í ófrjósemisaðgerð, var bólusett og eyrnamerkt. Hún þarf að ganga um með svona lampaskerm á hausnum, sem er mjög fyndið, en hún er var orðin hálf þunglynd af skerminum áðan þannig að ég tók hann af í smá stund. Hún labbar um núna og leikur sér rosa ánægð.
Jæja :)
10. janúar 2009 klukkan 23:37
Þórunn Soffía Þórðardóttir Engin athugasemd
Ég er komin í rosalegt jólaskap, jólajólajólajól.... Ég var í gær að hjálpa til að skreyta hérna í Breiðuvík, svo fór ég með Sóley inná Húsavík í dag til að klára jólainnkaupin.
Jól á morgun jibbí!
23. desember 2008 klukkan 19:14
Þórunn Soffía Þórðardóttir 1 athugasemd
Jæja þá er maður kominn í Breiðuvíkina. Rosa gott að koma þangað. Kisurnar á heimilinu eru ekkert alltof sáttar við hana Nóru mína en það á vonandi eftir að lagast.
Síoðustu tvo daga er ég búin að vera hjá Rebekku frænku, en það var alveg einstaklega gott :) því þá fékk ég svona smá mömmó :) gott að geta orðið litla barnið í smá stund hehehe.
Friðþór kemur vonandi á morgun!!!
16. desember 2008 klukkan 21:56
Þórunn Soffía Þórðardóttir Engin athugasemd
Ég kláraði síðustu skúringuna mína í gærmorgun uppi á safni. Mikið var það gott :) Síðan er ein lítið Nings vakt eftir í kvöld og þá er ég komin í jólafríið mikla.
Í gærkveldi var jólahúllumhæ... eða jólagilligill eins og það hét... fyrir þá starfsmenn Kópavogs sem vinna í menningarstofnununum uppí Hamraborg. Gilligillið var haldið í Salnum en þangað hafði ég ekki komið áður. Allt var rosa fínt, fordrykkur og spjall á undan matnum, lítið strákaband sem kallar sig Friends 4 Ever spiluðu og spungu, rosa flott hjá þeim. Síðan var mjög góður matur, sjávarréttir í forrétt og lambakjöt í aðalrétt. Fullt af hvítvíni með... og allt var svo gott. Ég ætlaði varla að þora að keyra heim þannig að ég drakk alveg helling af kaffi með sörunum í eftirmat. Ég hafði aldrei smakkað sörur fyrr en í gær!!! ótrúlegt... Síðan var sungið og hlegið heil ósköp.
Núna er ég að gera tilraun til þess að pakka. Er búin að skrifa lista yfir allt sem ég ætla að taka með mér, vantar bara að byrja!
13. desember 2008 klukkan 14:13
Þórunn Soffía Þórðardóttir Engin athugasemd
Ég er 23 ára gömul og bý í Kópavoginum. Ég er að vinna við skúringar og þjónustustörf en er líka að reyna að klára skólann.
Auglýsing
Persónuleikatréð segir:
Manneskjan tekur því sem að höndum ber. Hún forðast deilur, þolir illa þrýsting og erfiði. Hinsvegar kann hún hvorki að meta leti og slóðahátt. Hún er tilbúin til að leggja allt í sölurnar fyrir vini sína og gefur oft eftir.
Manneskjan býr yfir ýmsum hæfileikum en skortir þrautseigju til að láta drauma sína rætast. Hún á það til að kvarta og kveina, er ákaflega afbrýðisöm en mjög trygg.